Harmsögur ævi minnar

8.3.10

Það er eitthvað fluffedífluff í gangi með þessi komment hérna á síðunni. Það plagar mig mjög. Reyndar var ég búin að fá trilljón pósta frá Haloscan um að blablabla, vildi að ég gæti sagt hvað en ég náttúrulega nennti ekkert að lesa, hélt að þetta væri eitthvað spam bara. Nú er ég búin að lesa póstana frá þeim og obbobb, þá er bara Haloscan að loka og einhver fjandinn og ég hafði þarna einhvern smá tíma til að færa kommentin mín yfir eitthvert annað en lengra nennti ég nú ekki að lesa. Það er víst samt sem Intrum segir: Ekki gera ekki neitt! Ég gerði ekki neitt og sjáið hvar ég er í dag: áralöng kommentauppsöfnun farin í súginn, í súginn segi ég. Held ég. Annars hef ég ekki nennt að pæla í þessu frekar en öðru. A.m.k. ekki á mánudegi.