Harmsögur ævi minnar

30.3.10

Þetta langar mig að gera í páskafríinu:
  • Taka til í fataskápnum
  • Hreinsa til í rafræna tónlistarsafninu mínu
  • Hreinsa til í rafræna myndasafninu mínu
  • Þrífa íbúðina almennilega
  • Taka til í geymslunni
  • Klára bókina sem ég er að lesa

Þetta mun ég sennilega gera í páskafríinu:
  • Detta í það 
  • Og í framhaldi af því: Vera þunn
  • Glápa á vídeó
  • Éta súkkulaðileifar upp úr naflanum á mér

29.3.10

Ég smellti á auglýsingu um þessa síðu af Facebook í dag. Nú ætla ég svo sem ekkert að dæma um það hvort til séu plástrar sem „senda frá sér ákveðna ljósorku á ákveðinni tíðni þegar þeir koma inn í hitasvið líkamanns með skilaboðum til líkamans um að gera hitt og þetta, bæta og laga eitt og annað“. Hins vegar set ég spurningamerki við aðrar upplýsingar sem þarna koma fram. Þarna er dásamað eitthvað sem kallað er MLM, eða Multi-level marketing (MLM - Mest vaxandi viðskiptagrein veraldar og gerir flesta einstaklinga fjárhagslega sjálfstæða.“) Á síðunni eru taldir upp nokkrir kostir MLM. Fyrsta atriðið er þetta: 


„1 - Er algengasta leiðin til fjárhagslegs frelsis. Meira en 50% fjárhagslegra sjálfstæðra einstaklinga eru að starfa við MLM“ (hægt að smella á mynd til að sjá stærri).




Sko hérna... hvers kyns tölfræði er þetta eiginlega? Er verið að tala um að helmingur allra fjárhagslegra sjálfstæðra einstaklinga í heiminum stundi þetta MLM? Ég þekki nefnilega engan. Jah, engan nema kærustuna hans Dwight Yorke. (Við náttúrulega þekkjumst ekki í alvörunni en mér finnst ég þekkja hana, já og þau bæði reyndar. DV.is gerir ekki annað en að birta „fréttir“ af þeim og lets feis itt, þetta er bara of gott stöff.) En sem sagt: Ég veit um eina manneskju. Eruð þið öll hin sem ég þekki þá fjárhagslega ósjálfstæðir aumingjar og bótasugur? Og ég líka kannski? Þetta er alls ekki gott mál.

22.3.10

Ég er í frí-krísu (frísu?). Ég var búin að lofa sjálfri mér að fara ekkert til útlanda í sumar. Aðallega vegna þess að ég var í þrjá mánuði að borga kreditkortareikninginn minn eftir ferðina síðasta sumar. Núna er ég samt alveg að drulla í brækurnar, mig langar svo mikið út. Ég er búin að vera að glugga í gegnum orlofshúsasíðuna hjá stéttarfélaginu mínu í von um að sjá eitthvað girnilegt innanlands í staðinn. Ég er reyndar ekkert viss um að það kosti minna og svo er það líka hægara sagt en gert þegar maður er bíllaus. En hvað um það, ég stakk upp á því við Sambó að við myndum leigja okkur hús í Hrísey. Það er örugglega geggjað kósí og rómantískt. Yfir því fussaði hann og sveiaði eins og enginn væri morgundagurinn. Hann væri hugsanlega til í viku á Akureyri... en helst vill hann halda sig við suðvesturhornið. Köfun á Bali verður víst bara að bíða... ætli ég neyðist ekki til að hanga í sjoppunni á Laugarvatni í staðinn. Í sárabætur mun ég leyfa mér að ganga allan daginn í flíspeysu og borða mikið af kokkteilsósu.

19.3.10

Þegar ég verð stór langar mig í risastórt eldhús með útsýni yfir garðinn minn. Kannski dálítið eins og í þessu húsi:

Tvær systur rölta saman í Háskólabíó á tónleika:

1: Mikið er veðrið nú fallegt.
2: Já alveg svakalega. Sjáðu líka hvernig skín á fjallið þarna. Hvaða fjall er þetta annars?
1: Uuuu, þetta er reyndar Esjan.
2: Já djók, æi ég er nefnilega ekkert svo góð í raungreinum og vísindum.
1: ???

17.3.10

Síðan síðast er ég búin að:
  • Fá skemmtilegan útlending í heimsókn.
  • Fara á fjórhjól.
  • Fara í Bláa lónið (fékk yfirdrátt fyrir því).
  • Sigla á kajak í sjónum.
  • Fara í sund á Stokkseyri.
  • Borða tapas og drekka marga bjóra og margar ginblöndur með skemmtilegu fólki.
  • Keyra út um allt Suðurland og Suðurnesin.
  • Og síðast en ekki síst: Fá blöðrubólgu í fyrsta skipti. Það lýsti sér nú helst þannig að ég var heila nótt að reyna að pissa og ekkert kom. Það var ákaflega pirrandi en ég hafði nú svo sem ekkert stórar áhyggjur fyrr en ég gat pissað smá en obbobbobb, það var blóð. Maður vill ekki, undir neinum kringumstæðum, pissa blóði. Ég var náttúrulega handviss um að ég væri með leghálskrabbamein eða sturlaðar innvortis blæðingar eða eitthvað þaðan af verra og hringdi í sambýlismanninn skelfingu lostin. Honum tókst að fá tíma hjá kvensjúkdómalækni fyrir mig og þá var þetta nú víst bara blöðrubólga. En þar sem ég var viss um að ég væri að drepast hef ég öðlast virðingu fyrir lífinu á ný. Og jafnframt gert mér grein fyrir því að sennilega er ekkert sniðugt að hlaupa berrassaður niður Laugaveginn um hávetur. Ég er að þroskast svo mikið sem manneskja þessa dagana að það er bara ekki eðlilegt.

8.3.10

Það er eitthvað fluffedífluff í gangi með þessi komment hérna á síðunni. Það plagar mig mjög. Reyndar var ég búin að fá trilljón pósta frá Haloscan um að blablabla, vildi að ég gæti sagt hvað en ég náttúrulega nennti ekkert að lesa, hélt að þetta væri eitthvað spam bara. Nú er ég búin að lesa póstana frá þeim og obbobb, þá er bara Haloscan að loka og einhver fjandinn og ég hafði þarna einhvern smá tíma til að færa kommentin mín yfir eitthvert annað en lengra nennti ég nú ekki að lesa. Það er víst samt sem Intrum segir: Ekki gera ekki neitt! Ég gerði ekki neitt og sjáið hvar ég er í dag: áralöng kommentauppsöfnun farin í súginn, í súginn segi ég. Held ég. Annars hef ég ekki nennt að pæla í þessu frekar en öðru. A.m.k. ekki á mánudegi.

3.3.10

Hvað er eiginlega að gerast með tímann? Hvernig getur verið kominn mars? Ég finn dauðann nálgast með hverjum andardrætti. Þess vegna ætla ég að labba ber að neðan niður Laugaveginn í dag. Nýta tímann maður, nýta tímann.

1.3.10

Ég fékk þennan dásamlega tölvupóst áðan:


Nudd á íslensku/Massage in English


Nota þetta framlag til að vinna License
 
Ástkær vini í Drottni,
Kveðja til þín og alla fjölskylduna þína, það er satt að við vitum ekki hvert annað í fortíðinni en ég fékk samband við á meðan persónulegur leit á netinu skrá og eftir að ég fasted og bað til Guðs til að tengja mig við heiðarleg manneskja sem vilja heiðarlega hjálpa mér að yfir sjá þessa philanthropists verkefni, fannst ég leiddi af heilögum anda Guðs til að velja þér að vinna þetta verkefni þar sem Guð vill að ég valið þig.
Ég veit að Guð er trúr að orð hans því hann segir í Jes 46:11, ég hef talað það, ég mun einnig koma með það að fara, ég purposed það, ég mun líka gera það.
Í stutta kynningu, er ég frú Esther John, ég er kvæntur Late Eng. John Daniel á blessað minni, til dauða hans var hann olíu Wells bora og viðhald verktaka við helstu fyrirtækjum olíu í Katar, Kúveit, Sádi-Arabía og loks í lýðveldinu Fílabeinsströndin þar sem við höfum búið tuttugu í fjögur ár áður en hann lést árið 2007.
Við vorum gift í mörg ár án þess að barn. My Husband dó eftir stutt veikindi, sem stóð í aðeins tvær vikur. Áður en hann lést vorum við varið kristnir og philanthropists. Þar dauða hans sem ég hef verið Orrusta við bæði krabbameini og Fibroid vandamál sem hefur defiled allur góður af læknisfræðilegur meðhöndlun frá ýmsum læknisfræðilegum sérfræðingum.
Dapur til segja þessi nýlega, læknirinn minn sagði mér að ég hafi einungis stuttur tími til að lifa vegna krabbameins veikindum. Þó það disturbs mig mest er högg veikindum mínum. Eftir að hafa þekkt ástand mitt ákvað ég að gefa þessu sjóður ég arf frá seint eiginmanni mínum til heiðarleg manneskja sem vilja nýta þessa peninga og ég mun kenna hér.
Þegar seint maðurinn minn væri á lífi hann er gríðarstór Skilagjald af fé við stofnun í Fílabeinsströndin, sem hann langaði til að nota í fjármögnun mannúðar-og góðgerðarstarfsemi verkefni að lokum fyrir skyndilegum dauða hans kom. Um þessar mundir, þetta fé er enn við stofnun sem seint maðurinn minn gert að leggja, því ég vildi að batna frá illa heilsu mína áður en ég get krafa að leggja til að halda áfram með kærleika vinnur í samræmi við vilja og löngun af seint maðurinn minn, en Því miður ég get ekki lengur gert það með því að sjálf mín vegna illa heilsu mína og stutt líf að lifa hér á jörð og spáð fyrir læknir minn.
Í stjórn stofnunarinnar þar sem maðurinn minn gerði inná bara skrifaði að mér og hárið / viðtakanda að leggja til að koma fram til að skrá þig inn til að gefa út þessa innborgun eða fremur gefa út bréf um heimild til mín hlið af kin til að fá hana á hönd mína.
Ég skrifa þér til að leita eftir samstarfi á-rekstri sem heiðarlegur og Guð óttast mann lifandi úr megin landi mínu þannig að ég geti falið nafnið þitt eins og mitt við hliðina á kin til að fá þessa upphæð fyrir hönd mína og nota það í allt einlægni að sjóður fátækum, munaðarleysingjahæli, ekkjur og kærleika stofnanir í þínu landi og um allan heim, án tillits til trúarbragða, kastað eða trúar.
Ég tók þessa ákvörðun vegna þess að ég hef engin börn né arf sem munu erfa þetta fé að auki, ættingjar og vinir hafa rændu svo mikið af auði mínum frá veikindum mínum, ég get ekki lifað með kvöl í entrusting síðustu ósk mína og ábyrgð að allir þeim. Ég vil ekki harður vinna sér eiginmaður minn pening til að vera misnotað af gráðugur aðstandendur hans. Ég vil ekki ástand sem þetta fé verður notað í ungodly hátt.
Um leið og ég fæ svarið, mun ég gefa út bréf sem yfirvald heimila sem sagði innborgun hefur verið willed þér og ætti að gefa út til þín, afrit af slík heimild verður fluttur á stofnun og þú með frekari tilskipanir um hvernig á að ná til stofnunarinnar til að fá að leggja hönd mína.
Það eina sem ég þarf frá þér er trygginga sem þú munt nota þessa upphæð til að uppfylla löngun í mig og seint maðurinn minn sem ég hef lýst hér.
Senda svar þitt til mín með tölvupósti og fullvissa mig ef þú geta séð þetta verkefni, sem töf á svarið gefur herbergi í uppspretta fyrir öðrum samtökum eða helgaðar einstök fyrir þennan sama tilgangi.
Megi almáttugur Guð halda áfram að leiðbeina og verja þig.
 

Mrs Esther John.

Ég mun að sjálfsögðu nota upphæðina til að uppfylla löngun í Frú John. Eða kaupa mér íslenskt nudd kannski.